„21 árs dóttir mín fékk túrbókrabbamein eftir bólusetningu“ – Hrafn krefst svara | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E33
Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir · Brotkast ehf.
Beskrivelse
Í þessu viðtali segir Hrafn Margeirsson frá erfiðustu reynslu lífs síns: missi 21 árs dóttur sinnar sem lést úr mjög ágengu ristilkrabbameini árið 2024. Hrafn er sannfærður um að veikindi dóttur sinnar tengist Covid-bólusetningum sem hún fékk árið 2021. Hann rekur þá atburðarás sem varð til þess að hann skipti um skoðun á bólusetningunum, segir frá leit sinni að svörum eftir andlát dótturinnar og gagnrýnir harðlega íslensk heilbrigðisyfirvöld, fjölmiðla og lyfjafyrirtæki. Meðal þess sem rætt er: • Saga 21 árs dóttur Hrafns og veikindi hennar • Hvað svokallað „túrbókrabbamein“ er að mati þeirra sem nota hugtakið • Aukaverkanir Covid-bólusetninga og skráningar þeirra • Umræða um sprautuskaða á Íslandi • Gagnrýni á heilbrigðisyfirvöld og fjölmiðla • Hvers vegna Hrafn telur að mikilvægar spurningar hafi ekki verið rannsakaðar Athugið: Viðmælandinn lýsir hér eigin skoðunum, reynslu og túlkun á atburðum.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/