74) Fljúgum hærra - Toyoko Tokiwa og konurnar í Rauða hverfinu
Fljúgum hærra · Lovísa og Linda
27. september 2023 42m
0:00 42m
Beskrivelse
Hún var þrettán ár gömul þegar faðir hennar deyr í sprengjuárás Bandaríkjahers og seinna þetta sama ár, 1945 falla kjarnorkusprengjur á Hiroshima og Nagasaki. Þegar Toyoko Tokiwa verður seinna ljósmyndari beinir hún linsunni að óvininum, bandarískum hermönnum í rauða hverfinu í Yokohama, heimaborg hennar. Frægastu myndirnar sýna nöturlegar aðstæður vændiskvenna í samskiptum við hermenn og hún skapar sér frægð með ljósmyndabókinni „Kiken na Adaba“ (Dangerous Poisonous Flowers) sem kom út 1957. Sú ljósmyndabók gefur verðmæta sýn á samfélag Japans á umbrotatímum eftir stríðslok.