Spring til indhold
Spjallið með Frosta Logasyni | S03E11 | Varnarsamningur við Bandaríkin í uppnámi - Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir

Spjallið með Frosta Logasyni | S03E11 | Varnarsamningur við Bandaríkin í uppnámi

Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir · Brotkast ehf.

5. marts 2025 4m
0:00 4m

Beskrivelse

Arnar Þór Jónsson, lögmaður og fyrrverandi forsetaframbjóðandi, er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hann ræðir hér um þær stjórnmálahræringar sem eiga sér stað á vesturlöndum um þessar mundir og stöðu alþjóðamála. Hann telur stefnu Evrópuríkja gagnvart Bandaríkjunum sem hafa viljað enda stríðið í Úkraínu varasama og hefur áhyggjur af þáttöku íslenskra ráðamanna í því. Arnar segir varnarsamning Íslands við Bandaríkin vera í mikilli hættu þegar íslenskir stjórnmálamenn eru nokkurn vegin farnir að taka sér stöðu gegn Bandaríkjunum og hefur áhyggjur af því að stefna stjórnvalda sé að fara sækja hraðar um inngöngu í Evrópusambandið. Arnar spáir Flokki fólksins ekki miklu langlífi þar sem hann telur alveg ljóst að styrkjamálið svokallaða hafi ekki enn verið til lykta leitt.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Andre episoder fra Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir Se alle episoder →